Litlu Jól FÍBer

Litlu Jól FÍBers verða haldin í mötuneytinu í sameiginlega húsinu/Felleshus sunnudaginn 4. des. nk. kl. 13:00–16:00 (í sama sal og Skoppa og Skrítla voru með uppákomu í október sl.) Heimilisfangið er Botschaft von Island Felleshus, 4. hæð Rauchstr.1 10787 Berlin. En þar sem við erum að halda þetta á eigin vegum þá ætlum við að sameinast um að koma með veitingar og drykki. Vinsamlegasta látið Helenu Hilmarsdóttur (helenahilmarsdottir@gmail.com) vita með mætingu en hún mun halda utan um hver mun koma með hvað. Við munum ekki hafa aðgang að mötuneytinu og þurfum að koma með allt sjálf. Pappadiska, -glös, plasthnífa, tuskur, ruslapoka, kaffi og kaffibolla. Við þurfum öll að taka þátt í að ganga frá eftir ballið. Það þarf að passa að ganga frá öllu t.d stólum og borðum eins og við komum að salnum. Taka allt rusl, þurrka af og sópa. Öryggisvörðurinn lokar húsinu kl 16:30 og setur kerfið á. Þá verða allir að vera farnir út fyrir þann tíma. Ef einhver á jólasveinabúning og hefur áhuga að leika jólasvein þá endilega látið mig vita. Endilega komið með jólalög til að dansa í kringum jólatréið. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest

Skilja eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s